Siðareglur og hegðunarviðmið

Siðareglur þessar eiga við um alla aðila innan Ju Jitsufélags Reykjavíkur og eiga við í öllu starfi og viðburðum sem skipulagðir eru af félaginu. Kynntu þér og tileinkaðu siðareglur þær sem hér er að finna: 

  1. Komdu fram af fullkomnum heilindum og háttvísi gagnvart sjálfum þér og öðrum.
  2. Gættu trúnaðar og þagmælsku í störfum þínum en þó innan takmarkana lögboðinnar tilkynningarskyldu.
  3. Misnotaðu ekki valdastöðu þína eða hvers konar yfirburði sem þú kannt að hafa yfir öðrum. 
  4. Gættu jafnræðis og varastu að misbjóða virðingu einstaklinga eða hópa t.d. hvað varðar kynþátt, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, félagslega stöðu, aldur, kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni eða kyntjáningu á öllum sviðum samfélagsins.
  5. Þiggðu hvorki gjafir né hlunnindi sem geta leitt til þess að rýra trúverðugleika, sjálfstæði eða hlutleysi þitt.

Að æfa sjálfsvarnaríþrótt felur óhjákvæmilega í sér æfingar í líkamlegri valdbeitingu. Við berum virðingu fyrir mörkum æfingafélaga okkar, og æfum eingöngu innan þess ramma sem settur er af þjálfara og iðkandi gefur samþykki fyrir með þátttöku. Ofbeldi eða hversháttar valdbeiting utan þess ramma er með öllu ólíðandi.

  1. Komdu fram af virðingu
    1. Komdu eins fram við alla iðkendur óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu. 
    2. Berðu virðingu fyrir einstaklingnum óháð getu eða metnaði til að ná árangri.
    3. Berðu virðingu fyrir iðkendum, foreldrum/forsjáraðilum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki og stuðlaðu að því að iðkendur geri slíkt hið sama.
    4. Berðu virðingu fyrir mörkum og þægindaramma einstakra iðkenda. Tryggðu að mörkin milli æfinga og ofbeldis séu skýr á æfingum.
  2. Komdu fram af heiðarleika
    1. Farðu eftir reglum íþróttagreinarinnar, haltu á lofti heiðarleika og virðingu og hvettu iðkendur til að gera það líka.
    2. Stuðlaðu að jákvæðu og íþróttalegu umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.
    3. Gættu trúnaðar og sýndu aðgætni við meðferð og vörslu persónuupplýsinga. Undantekningu frá þagnarskyldu má einungis gera af brýnni nauðsyn og í samræmi við lagaboð.
  3. Vertu góð fyrirmynd bæði innan sem utan vallar
    1. Allir iðkendur eiga skilið að fá athygli og jöfn tækifæri.
    2. Leggðu þig fram þannig að iðkendur fái sem mest út úr æfingunni.
    3. Sýndu sanngirni, tillitssemi, og heiðarleika.
    4. Ýttu undir heilbrigðan lífsstíl með góðu fordæmi.
  4. Berðu virðingu fyrir þjálfarastarfinu
    1. Gerðu kröfur til þín varðandi málfar, hegðun, stundvísi, undirbúning og kennslu/þjálfun.
    2. Sýndu íþróttinni og félaginu virðingu og virtu reglur.
    3. Leggðu metnað þinn í starfið og leitaðu leiða til að auka þekkingu þína.
    4. Skipuleggðu starfið með tilliti til getu og þroska iðkenda.
    5. Hikaðu ekki við að leita eftir samstarfi við aðra þjálfara eða sérfræðinga.
    6. Taktu leiðtogahlutverk þitt alvarlega og nýttu stöðu þína á uppbyggilegan hátt.
    7. Haltu iðkendum og aðstandendum upplýstum um þjálfunina.
  5. Það sem er iðkandanum fyrir bestu
    1. Gættu að öryggi í umhverfi og að aðbúnaður hæfi aldri og þroska iðkenda.
    2. Settu heilsu og heilbrigði iðkenda á oddinn og varastu að setja þá í aðstöðu sem ógnað getur heilbrigði þeirra.
    3. Sýndu athygli og umhyggju þeim sem orðið hafa fyrir meiðslum og þeim sem leita til þín vegna andlegrar vanlíðunar.
    4. Forðastu að koma þér í þá stöðu að vera í einrúmi með iðkanda.
  6. Ofbeldi er ekki liðið í íþróttahreyfingunni!
    1. Vertu vakandi og beittu þér gegn öllu ofbeldi: líkamlegu, kynferðislegu og andlegu.
    2. Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða með öðrum hætti.
    3. Forðastu líkamlega snertingu við iðkendur, nema þar sem hún er nauðsynlegur hluti þjálfunarinnar.
    4. Þér ber skylda til að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu.
  1. Komdu fram af virðingu
    1. Komdu eins fram við alla óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.
    2. Berðu virðingu fyrir einstaklingum óháð getu eða metnaði til að ná árangri.
    3. Sýndu íþróttinni virðingu og virtu reglur hennar, venjur og siði.
    4. Berðu virðingu fyrir æfingafélögum, foreldrum/forsjáraðilum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki
    5. Leggðu þitt að mörkum til að skapa jákvætt andrúmsloft sem er laust við líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi.
    6. Berðu virðingu fyrir mörkum og þægindaramma æfingafélaga þinna. Stattu vörð um mörkin milli æfinga og ofbeldis.
  2. Komdu fram af heiðarleika
    1. Farðu eftir reglum íþróttarinnar og komdu fram af fullkomnum heilindum og háttvísi gagnvart sjálfum þér og öðrum.
    2. Leggðu þitt að mörkum til að skapa jákvætt andrúmsloft og umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.
  3. Vertu góð fyrirmynd bæði innan sem utan vallar
    1. Berðu ábyrgð á eigin hegðun.
    2. Gerðu þitt besta þannig að þú fáir sem mest út úr æfingunni.
    3. Sýndu sanngirni, tillitssemi, og heiðarleika, og hafðu það hugfast að þú ert fyrirmynd yngri iðkenda.
    4. Tileinkaðu þér heilbrigðan lífsstíl.
    5. Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða með öðrum hætti.
  1. Mundu að barnið þitt er í íþróttum sín vegna, en ekki þín vegna.
  2. Hvettu barnið til þátttöku í íþróttum, en ekki þvinga það.
  3. Hvettu öll börn, ekki bara þitt.
  4. Sýndu jákvæðni, líka þegar á móti blæs.
  5. Berðu virðingu fyrir öllum iðkendum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki.
  6. Berðu virðingu fyrir réttindum barna, hvert barn er einstakt.
  7. Mundu að þjálfarinn þjálfar en foreldrar hvetja.
  8. Upplýstu um stríðni, einelti eða áreitni.
  9. Sýndu starfi félagsins virðingu og vertu virkur þátttakandi.
  10. Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða öðrum hætti.
  11. Þér ber að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu.
  1. Komdu fram af virðingu
    1. Komdu eins fram við alla óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.
    2. Berðu virðingu fyrir skoðunum annarra.
  2. Komdu fram af heiðarleika
    1.  Farðu eftir reglum íþróttahreyfingarinnar, haltu á lofti heiðarleika og virðingu og hvettu félagsmenn til að gera það líka.
    2. Stuðlaðu að jákvæðu og íþróttalegu umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.
    3. Gættu fyllsta trúnaðar þar sem við á.
    4. Forðastu eða tilkynntu fjárhagslega og persónulega hagsmunaárekstra.
  3. Vertu félagsmönnum góð fyrirmynd
    1. Vertu ávallt til fyrirmyndar varðandi hegðun og framkomu, bæði innan félags og utan
    2. Virtu lýðræðisreglur og gagnsæi við ákvarðanatöku og stjórnaðu samkvæmt reglum um ábyrga fjármálastjórn.
    3. Sýndu sanngirni, tillitssemi og heiðarleika.
    4. Leggðu metnað í starfið og berðu ábyrgð á eigin hegðun.
    5. Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða öðrum hætti.
  4. Berðu virðingu fyrir starfsemi félagsins
    1. Þekktu lög og reglur félagsins.
    2. Stattu vörð um anda og gildi félagsins.
    3. Hafðu lýðræðisleg vinnubrögð í heiðri.
    4. Sýndu íþróttum virðingu og virtu reglur þeirra, venjur og siði.
    5. Sýndu öllum iðkendum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og starfsfólki virðingu og stuðlaðu að því að iðkendur og félagsmenn geri slíkt hið sama.
    6. Þér ber skylda til að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu.